Fríar færslur. Betra gengi. Ekkert bull.
Einfaldari staður fyrir peningana þína.
Af hverju indó?
Þú átt ekki að borga fyrir að nota peninginn þinn.
Engin færslugjöld.
Engin færslugjöld.
Sérstakt gjald á hverja færslu er aðferð bankanna við að rukka þig fyrir að nota þína eigin peninga. Hjá okkur kostar ekkert fyrir þig að nota þína peninga. Þannig hefði það alltaf átt að vera.
Við hjálpum þér að spara með allskonar sparitrixum.
Skemmtilegra að spara.
Skemmtilegra að spara.
Við köllum sparnaðarreikningana okkar sparibauka því þeir eru svo miklu skemmtilegri en venjulegir sparnaðarreikningar. Þeir eru sérstaklega hannaðir til að hjálpa þér að byrja að spara hugsunarlaust. Þú getur sérsniðið útlitið á bauknum þínum, breytt nafninu og bætt inn mynd, t.d. af því sem þú ert að safna fyrir. Þú getur líka sett þér markmið og virkjað allskonar sparitrix svo þú getir sparað án þess hreinlega að taka eftir því.
Ódýrasti kaffibollinn í stórborginni.
Ekkert auka álag erlendis.
Ekkert auka álag erlendis.
Þegar þú svolgrar í þig cappuccino á Ítalíu eða gæðir þér á ís á Kanarí ert þú að borga færri krónur en næsti ferðalangur því við seljum þér gjaldeyrinn á sama verði og við kaupum hann á.
Loksins nýr staður fyrir peningana þína.
Taktu þátt í að móta indó.
Vertu með í að móta indó.
Vertu með í samfélagi fólks sem vill búa til alveg nýjan valmöguleika fyrir fólk á Íslandi til að geyma og nota peninginn sinn og móta nútímabankaþjónustu á Íslandi. Öll þurfa nefnilega á bankaþjónustu að halda. Við þurfum bara ekki lengur gömlu bankana til að fá hana.