Síðasta matarkarfan!

Okkur finnst að enginn ætti að þurfa taka smálán fyrir síðustu matarkörfunni!

Sumir mánuðir eru erfiðari en aðrir. Ef þú ert með launin í indó getum við aðstoðað þig að ná endum saman með stuttu láni í lok mánaðarins þér að kostnaðarlausu. Okkur finnst að enginn ætti að þurfa að taka dýrt lán fyrir síðustu matarkörfu mánaðarins. Lánið er í boði frá 25. hvers mánaðar og þar sem að við vitum að það eru bara nokkrir dagar í að þú fáir útborgað þá getum við boðið þér 25.000 kr. lán þér að kostnaðarlausu. Lánið endurgreiðist sjálfkrafa eftir mánaðamótin þegar nægur peningur er á reikningnum.

Síðasta matarkarfan

Hvernig virkar síðasta matarkarfan?

Stutt lán

Sumir mánuðir geta verið erfiðari en aðrir og stundum er erfitt að ná endum saman. Okkur finnst að maður ætti ekki að þurfa að taka rándýrt smálán fyrir síðustu matarkörfunni - og við getum boðið stutt lán ef við vitum að við fáum það greitt til baka eftir örfáa daga.

indó app
Greiðist sjálfkrafa til baka

Þú þarft ekkert að hugsa um að borga peninginn til baka - við rukkum hann þegar það kemur peningur aftur inn á reikninginn.

Þá þarftu ekki að fleyta láninu neitt áfram. Þetta virkar bara alveg eins og að fá smá fyrirfram af laununum nokkrum dögum fyrr - eins og í gamla daga.

indó app
Hægt er að fá 25.000 kr. lán í hverjum mánuði

Hægt er að fá 25.000 kr. lán frá 25. hvers mánaðar og fram að mánaðamótum. Þú sækir um með því að smella á "lán" efst uppi í hægra horni á heimaskjánum.

indó app
Þú þarft ekki að vera með formlegan launareikning

Þú þarft ekki að fá launin þín formlega beint inn á indó frá vinnuveitanda. Við þurfum bara að sjá að það hefur komið regluleg færsla sem svipar til launagreiðslu í kringum síðustu þrjú mánaðamót.

Við þurfum í raun bara að treysta á að það komi peningur inn um mánaðamótin til að rukka lánið til baka.

indó app