Nú getið þið öll sparað saman!

Nú geta hvaða hópar sem er sparað saman í indó með hópabaukum!

Vinahópurinn, fjölskyldan, kórsystkinin, skólafélagar, vinnufélagarnir, öll ættin, liðsfélagar, nágrannarnir.... hvaða hópur sem er!

sparigrís

Hvernig virka hópabaukar?

Einfalt og gagnsætt

Öll í hópbauknum geta sparað saman inn á baukinn, fylgst með sparnaðinum vaxa og séð hvað hvert og eitt hefur lagt í púkkið!

indó app
Baukstjórinn er algjör stjóri...

Baukstjórinn er sá sem býður öllum í hópbaukinn og þar með er sá aðili algjör stjóri.

Baukstjórinn er sá eini sem getur tekið út af bauknum og er raunverulegur eigandi bauksins.

Þú þarft því ekki að treysta öllum í bauknum! En þú þarft að treysta baukstjóranum.

indó app
Aðrir óbreyttir baukarar fylgjast með...

Allir baukarar geta fylgst með hvernig sparnaðinum gengur, hversu mikið hver hefur lagt í púkkið - og hvenær baukstjórinn tekur út pening og í hvað hann fer.

Baukarar þurfa ekki allir að vera í indó. Það er líka hægt að senda þeim bara reikningsnúmerið til að spara með!

indó app
Er eftir nokkru að bíða?

Taktu af skarið sem baukstjóri og bjóddu í bauk!

Baukstjórinn þarf ekki að vera sífellt að rukka í baukinn! Við í indó sjáum um það fyrir þig!

indó app

Góða skemmtun að spara saman!

Það er sjúklega gaman að spara saman með hópabaukum. Það er hægt að spara fyrir hverju sem er - með hverjum sem er! Taktu af skarið og bjóddu þínum hóp í bauk og sparið saman. Gleðin felst líka í tilhlökkuninni!

indó merki