Færslusplitt

Lán til að dreifa álaginu í dýrari mánuðum

Með Færslusplitti getur þú splittað færslu á kaupum sem þú hefur þegar greitt fyrir - og fengið lánað fyrir færslunni. Við dreifum síðan láninu fyrir þig á næstu 3 mánuði. Vextir af láni með Færslusplitti eru 14,25% og það er enginn aukakostnaður. Ekkert lántökugjald, ekkert niðurgreiðslugjald, ekkert greiðslugjald, ekkert færslugjald. Mundu að bera saman ÁHK* (árlega hlutfallstölu kostnaðar) þegar þú berð saman lánakjör.

Hvernig virkar færslusplitt?

Hvernig virkar Færslusplitt?

Með Færslusplitti getur þú splittað færslu sem þú hefur þegar borgað.

Við lánum þér og skiptum greiðslunni fyrir þig jafnt á næstu 3 mánuði. Hver greiðsla er fyrsta hvers mánaðar og greiðist sjálfkrafa af indó debetreikningnum þínum - óháð því hvenær þú splittaðir færslunni.

indó app
Hvernig splitta ég færslu?

Þú sækir um Færslusplitt í appinu með því að smella á "lán" takkan efst í hægra horninu á heimaskjánum og velja þar Færslusplitt. Ef þú uppfyllir allar lánakröfur, getur þú auðveldlega séð hvaða færslum er hægt að splitta með því að smella á “Splitta færslum” og velur splitta ef þú vilt splitta.

indó app
Hvað kostar að splitta færslu?

Færslusplitt er lán með 14,25% vöxtum. Það eru engin aukagjöld. Ekkert lántökugjald, ekkert niðurgreiðslugjald, ekkert greiðslugjald, ekkert færslugjald.

Hafðu í huga að öll aukagjöld á lánum hafa mjög mikil áhrif á lánakjörin þín. Þess vegna verða allir sem bjóða lán að gefa upp aðra prósentu - svokallað ÁHK* (árleg hlutfallstala kostnaðar). Þá er búið að taka allan kostnað sem það kostar þig að taka lánið í eina prósentutölu - svo þú getir borið saman ólík lánakjör.

indó app
Hvernig færslum er hægt að splitta?

Flestum færslum á bilinu 10.000 kr. - 250.000 kr. er hægt að splitta.

Eina undanþágan er að ekki er hægt að splitta færslum sem tengjast fjárhættuspili, gjafakortum, rafmyntakaupum eða peningaúttektum.

indó app
*ÁHK þýðir árleg hlutfallstala kostnaðar. Það sýnir hvað lánið kostar í raun á einu ári, með vöxtum og öllum aukagjöldum. Það borgar sig því að bera saman ÁHK þegar borin eru saman lánakjör ólíkra lána. ÁHK á Færslusplitti er hærra en vaxtaprósentan þrátt fyrir að lánið beri engin aukagjöld. Það er vegna þess að vextir á lánum miðast alltaf við árlega vexti. ÁHK tekur til greina hversu langt lánið er og þess vegna hækkar prósentan ef lánið er greitt hraðar en á einu ári, því það er dýrara fyrir þig að borga vextina fyrr. Ef lánið væri til 12 mánaða - væri prósentan sú sama.